11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í D-deild Alþingistíðinda. (3166)

213. mál, Keflavíkurvegur og Vesturlandsvegur

Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason) :

Herra forseti. Fsp. er í tveim liðum. A-liður hljóðar þannig:

„Hvenær er áætlað, að lokið verði við að steypa Keflavíkurveginn nýja?“

B-liður: „Hefur verið ákveðið um varanlega gatnagerð á Vesturlandsvegi frá Reykjavík og sé svo, hvenær hefjast þá framkvæmdir?“

Fsp. þessar eru ljósar og gefa ekki tilefni til þess, að þeim sé fylgt úr hlaði með sérstakri ræðu.