17.03.1965
Sameinað þing: 32. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í D-deild Alþingistíðinda. (3282)
219. mál, ríkisábyrgðir
Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég endurtek þakklæti mitt til hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann hefur gefið við þessari fsp. og tel, að sú skýrsla, sem hann hefur látið útbýta, sé bezta svarið og komi að fullum notum. En út af því, sem hann sagði um form á fsp., vil ég geta þess, að mér og fleiri hv. þm. finnst, að hæstv. ráðh. mættu stundum eyða skemmri tíma í að svara fsp. og þær gefi ekki tilefni til þess að lesa langar skýrslur upp, eins og þeir gera, hæstv. ráðh., lesa upp langar skýrslur í sambandi við fsp. En ég hygg, að þessi hæstv. ráðh. sé hinum fremri um það að svara þessu á stuttum tíma og það form, sem hæstv. ráðh. hafa tekið upp í svörum sínum, er allt annað en gildir um fsp. í brezka þinginu, svo að þessi fsp. er ekkert sérstæð um þá hluti.
Út af því, sem hann sagði um árangurinn af l. um ríkisábyrgðasjóð, er það gleðilegt, ef hann er einhver, en sýnilegur er hann ekki mikill enn í dag. Ég hef ekki tækifæri til þess að segja um það, hvort ríkisábyrgðir með einföldum ábyrgðum hafi reynzt öruggari, en hinar, en þessi tala, sem ríkisábyrgðasjóður greiðir árlega vegna ríkisábyrgðanna, er uggvænlega há og betur má, ef duga skal, til þess að leiðrétta þessi mál.