12.12.1964
Sameinað þing: 18. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (351)

1. mál, fjárlög 1965

Forseti (BF):

Í samræmi við venju allmörg undanfarin ár hefur orðið samkomulag um það milli þingflokkanna að fresta þar til síðar á þinginu hinum svokölluðu eldhúsdagsumr., sem samkv. þingsköpum eiga að fara fram við framhald 1. umr. Ég mun nú leita afbrigða frá þingsköpum um þessa frestun eldhúsdagsumr.