22.02.1965
Efri deild: 44. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (454)

4. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv, þetta var flutt í Nd. til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 10. des. s.l. Efni þess er breyt. á 1. um framleiðsluráð landbúnaðarins, að því er snertir leyfi til sauðfjárslátrunar í sláturhúsum, og eru engar breytingar við framleiðsluráðslögin aðrar en þær, sem felast í frv., og þar sem þetta frv. hefur ekki sætt neinum mótmælum og er afgreitt samhljóða frá landbn. hér í þessari hv. d. 14. des., sem mælir með, að frv. verði samþ. óbreytt, sé ég ekki ástæðu til að ræða það frekar.