11.03.1965
Efri deild: 53. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

80. mál, aðstoð við fatlaða

Forseti (SÓÓ):

Þetta Ed.-mál kom aftur frá Nd. vegna smávegis breytinga, sem það hefur tekið þar. Ég hef átt tal við formann heilbr. og félmn. þessarar d., og hefur hann tilkynnt mér, að n. muni ekki óska eftir að taka frv. til nýrrar athugunar eftir þessa breytingu í Nd. Kemur því frv. til atkv.