05.04.1965
Efri deild: 62. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 807 í B-deild Alþingistíðinda. (673)
104. mál, landgræðsla
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Þegar þetta frv. var afgreitt frá landbn., var ég ekki viðstaddur, og vil ég því undirstrika það hér, að ég er fyllilega samþykkur því frv., sem hér liggur fyrir, enda þótt um ýmis atriði mætti kannske deila. Vera má, að fyrir 3. umr. þessa máls komi ég fram með smábrtt., sem ég geri þá frekar grein fyrir, þegar þar að kemur. En þetta mál er, eins og hv. frsm. gerði grein fyrir, mjög stórt mál, ef vel er að því staðið í öllum atriðum.
Það er tekið fram í grg. þessa frv., að í því séu meginbreytingar frá eldri lögum í 10 veigamiklum atriðum. Sé það svo, að þessi lög eigi að ná tilgangi sínum, verður eitt af meginundirstöðuatriðum, að svo megi fara, að vel verði að því staðið fjárhagslega, því að fjármagnið er afl þeirra hluta, er gera skal. Þess vegna er það, að ég vildi fregna það hjá hv. frsm., af því að þeir, sem tilheyra hæstv. ríkisstj., vita margt, hafa mikil völd og ráða auk þess yfir miklu fjármagni, þá vil ég vita það, hvernig þeir hafa unnið að því, að fjárhagsleg aðstaða til landgræðslu verði bætt frá því, sem verið hefur, því að sjálfsagt hefur það eitthvað borið á góma, og verði ekki betur að því staðið en nú, held ég, að verði lítið úr mörgum veigamiklum atriðum þessa frv., ef ekki verður þar verulega bætt frá því, sem verið hefur. Ég vænti, að hv. frsm. geti gefið einhverjar upplýsingar um þessi atriði, enda þótt það liggi ekki fyrir neitt í nál.