08.04.1965
Neðri deild: 65. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í B-deild Alþingistíðinda. (709)
102. mál, jarðræktarlög
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég veit nú ekki, hversu skýrt ég hef talað áðan. Það, sem ég átti við, var, að það var fyrst á s.l. hausti, sem minnzt var á það að taka þetta ákvæði inn í jarðræktarl. Hitt var mér ljóst, að það var rætt um þetta mál á síðasta Alþ. í sambandi við vatnsveitulögin. En það hefur ekki komið til orða að taka þetta inn í jarðræktarl. fyrr en á s.l. hausti.