10.11.1964
Efri deild: 13. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (791)
53. mál, skipti á dánarbúum og félagsbúum o.fl.
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Þetta frv. er einnig fylgifrv. með frv. um hreppstjórana og leiðir af því, og læt ég nægja að vísa til grg., sem fylgir frv., um þetta tiltekna atriði, sem hér er gert ráð fyrir að hafa aðra skipun á, ef frv. um hreppstjórana verður að lögum.
Ég vildi leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og til hv. allshn.