10.11.1964
Efri deild: 13. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í B-deild Alþingistíðinda. (792)

53. mál, skipti á dánarbúum og félagsbúum o.fl.

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. dómsmrh. um það, hvað líður endurskoðun skiptalaganna samkv. þál., sem var samþ. á Alþingi 20, marz 1963. En þessi þál. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta fara fram endurskoðun á l. nr. 3 frá 12. apríl 1878, um skipti á dánarbúum og félagsbúum o. fl., og l. nr. 25 frá 14. júní 1929, um gjaldþrotaskipti.“

Þar sem þetta frv. er hér til umr., sem tilheyrir nefndri löggjöf, vildi ég heyra frá hæstv. ráðh., hvað langt er komið endurskoðun nefndra laga.