10.04.1965
Efri deild: 67. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (818)

173. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haldið fund út af þeim formsatriðum í sambandi við frv., sem ég gat um við 2. umr., að væru til athugunar. Hefur n. orðið sammála um að flytja í þessu tilefni nokkrar brtt. við frv., sem útbýtt hefur verið fjölrituðum meðal hv. þdm., og leyfi ég mér hér með að leggja þær fram sem skriflegar brtt. og biðja hæstv. forseta um að leita afbrigða fyrir þeim.