05.04.1965
Efri deild: 62. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (934)
157. mál, Myndlista- og handíðaskóli Íslands
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. þd. hefur rætt það frv., sem hér liggur fyrir, á tveimur fundum. í grg., sem frv. fylgir, og í framsöguræðu hæstv. menntmrh. við 1. umr. málsins var gerð allýtarleg grein fyrir efni frv, í aðaldráttum og í einstökum atriðum og ég sé ekki ástæðu til að bæta þar neinu við.
Eins og fram kemur í nál. menntmn. á þskj. 405, leggur n. til, að frv. verði samþ. með nokkrum breytingum, sem n. flytur á sérstöku þskj., þskj. 406 og ég skal nú gera grein fyrir þessum brtt. n., sem reyndar liggja í augum uppi.
Ég skal þá fyrst víkja að 2. brtt. menntmn., sem er við 11. gr. frv., en í 11. gr. segir, að kennsluskylda skólastjóra skuli ákveðin af menntmrn. og í 2, mgr. sömu greinar er kveðið á um kennsluskyldu fastra kennara skólans. Nú er hins vegar kveðið svo á í 3. mgr. 9. gr. frv., að skólastjóri og fastir kennarar skólans séu embættismenn ríkisins. Með l. nr. 55 frá 1962, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, var ríkisstarfsmönnum veittur samningsréttur um launakjör sín og starfskjör. 1. og 2. mgr. 11. gr. þess frv., sem hér liggur fyrir, er ekki í samræmi við kjarasamningslögin og því leggur n. til, að þessar málsgreinar falli niður. Í samræmi við þetta er svo í 1. brtt. n. lagt til, að í stað „launakjör“ komi „launakjör og kennsluskyldu“, það er í síðustu mgr. 9. gr. frv. og sú mgr. yrði þá svo hljóðandi: „Um launakjör og kennsluskyldu skólastjóra og kennara fari eftir ákvæðum l. nr. 55 frá 1962, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.“
3. brtt. frá n. er leiðrétting. Í síðustu mgr. 13. gr. er vitnað í 4. mgr. sömu frvgr., en á að vera tilvitnun í 3. mgr. Eins og hv. þm. sjá, er í fyrirsögn frv. orðið ,.handíðaskóla“ ritað með stórum upphafsstaf, á að sjálfsögðu að vera lítill upphafsstafur í orðinu, eins og fram kemur einnig í 1. gr. frv. N. leit svo á, að þar væri nánast um misprentun að ræða og því ekki ástæða til að flytja brtt. um þetta atriði, en verður hins vegar séð um, að það verði leiðrétt í endurprentun frv.