08.10.1965
Sameinað þing: 0. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (1)
Forseti hæstaréttar setur þingið
Forseti hæstaréttar (Þórður Eyjólfsson):
Hinn 10. sept. 1965 gáfu handhafar forsetavalds í fjarveru forseta Íslands út svofellt bréf:
„Handhafar valds forseta Íslands samkv. 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar, gera kunnugt:
Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi skuli koma saman til fundar föstudaginn 8. október 1965.
Um leið og vér birtum þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.
Gert í Reykjavík, 10. september 1965.
Bjarni Benediktsson, Birgir Finnsson,
Þórður Eyjólfsson.
Bjarni Benediktsson.
Bréf handhafa valds forseta Íslands um, að reglulegt Alþingi 1965 skuli koma saman til fundar föstudaginn 8. október 1965.“
Í fjarveru forseta Íslands lýsi ég yfir því, samkv. ákvörðun handhafa valds forseta Íslands, að Alþingi Íslendinga er sett.
Ég árna Alþingi heilla í störfum og vona, að þau megi verða landi og þjóð til gæfu og gengis. Bið ég hv. alþm. að minnast ættjarðarinnar og forseta Íslands með því að rísa úr sætum.
[Þingmenn risu úr sætum, og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð.“Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]
Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram, og bið ég aldursforseta viðstaddra þm., Halldór Ásgrímsson, 2. þm. Austf., að ganga til forsetastóls.