14.10.1965
Neðri deild: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
12. mál, iðnfræðsla
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason). Herra forseti. Það er aðeins varðandi eitt atriði, sem hv. þm. gerði að umræðuefni í ræðu sinni, þ.e.a.s. um sambandið á milli þessa frv. og fjárlfrv. ríkisstj. Það, sem hann sagði um þau efni, er byggt á algerum misskilningi. Till. til fjárveitinga í fjárlfrv. eru að sjálfsögðu miðaðar við gildandi lög um iðnfræðslu. Það er ekki við því að búast og væru engan veginn réttar vinnuaðferðir að gera till. um fjárveitingar samkv. frumvörpum, sem Alþingi hefur til meðferðar. Till. um slíka fjárveitingu verða að bíða, þangað til Alþingi hefur afgreitt það frv., sem hér er um að ræða. Till., sem gerðar eru um fjárveitingar til byggingar iðnskóla í frv., sem nú hefur nýlega verið lagt fram, eru sem sagt grundvallaðar á gildandi lögum og eru í grundvallaratriðum óbreyttar frá því, sem verið hefur undanfarið. Lækkun, sem er á framlagi til iðnskólans í Reykjavík, byggist á því og sömu reglu og frv. almennt, að tekin er tala úr síðustu fjárl. og lækkuð um 25%, eins og raun varð á um framlagið á þessu ári. Breytingin að öðru leyti stendur í sambandi við það, að um sérstaka aukafjárveitingu var að ræða í þessu sambandi í fyrra. En til að taka af öll tvímæli um það, að ríkisstj. eru vel ljósar skyldur hennar varðandi tæknimenntunina á grundvelli þeirra laga, sem þegar eru í gildi, vildi ég benda hv. þm. og öðrum hv. þm. á það, að framlag til stofnkostnaðar tækniskóla, sem lög voru samþykkt um fyrir tveimur árum, er hækkað í síðasta fjárlfrv. um 2.5 millj. kr. Þar eru lögin þegar samþykkt af hinu háa Alþingi, tækniskólinn nýtekinn til starfa, og ríkisstj. hefur sannarlega ekkert vanrækt í þeim efnum að búa sem bezt að þeim skóla.