29.04.1966
Efri deild: 75. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)

9. mál, veiting ríkisborgararéttar

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Allshn. þessarar hv. d. barst nýlega erindi frá dóms- og kirkjumrn. þess efnis, að rn. mælir með því, að einum aðila sé bætt við i frv., eins og það kom frá hv. Nd. Þess vegna flytur n. skriflega brtt. um, að við 1. gr. bætist í stafrófsröð Theisen, Albert Niels, verkamaður á Akureyri, fæddur í Danmörku 17. júní 1911. N. varð sammála um að leggja þessa skrifl. brtt. fram.