26.04.1966
Neðri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2392 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)
152. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Sverrir Júlíusson:
Herra forseti. Þar eð frv. á þskj. 587 (sbr. 325), sem hér er til afgreiðslu, kveður svo á, eftir að brtt. meiri hl. sjútvn. Nd. voru samþ. í gærkvöldi, að stjórn Fiskveiðasjóðs skuli í samráði við sjútvmrh. og stjórn Seðlabankans ákveða lánstíma allra lána sjóðsins, svo og upphæð vaxta og önnur lánskjör, tel ég, að heildarsamtök útvegsmanna hafi góða aðstöðu til þess að koma sinum sjónarmiðum að varðandi þessi mál. Ég tel því brtt. þá, sem hér er til afgreiðslu, ótímabæra og segi því nei.