03.05.1966
Efri deild: 80. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2412 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)
7. mál, atvinnuréttindi vélstjóra á íslenskum skipum
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Mál þetta kemur aftur frá Nd. út af smávægilegri breyt., sem þar hefur verið gerð, en sem nauðsynleg var þó. Hún er einungis fólgin í því, að breytt er um gildistöku l. Ég hef rætt þessa sjálfsögðu breytingu við nm., og við mælum með því, að frv. verði samþ. eins og það kemur fyrir.