29.04.1966
Efri deild: 75. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2441 í B-deild Alþingistíðinda. (1646)
195. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Helgi Bergs:
Herra forseti. Með því að yfirlýsingar hæstv. ráðh. hafa verið með þeim hætti, sem d. hefur heyrt, og með tilvísun til fyrirvara míns í nál., þá verð ég að segja það, að þeim fyrirvara, sem ég gerði, hefur ekki verið fullnægt.
Ég vil því leyfa mér að leggja fram till. til rökstuddrar dagskrár í þessu máli, svo hljóðandi:
„Með því að d. telur að leggja beri samning, er gerður verður við hið erlenda fyrirtæki, fyrir Alþ. til staðfestingar, sér d. ekki ástæðu til þess að gefa svo víðtækar heimildir og tekur fyrir mæsta mál á dagskrá.“
Þessi till. er óprentuð.