03.03.1966
Efri deild: 45. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2488 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)

34. mál, sala eyðijarðarinnar Hálshúsa í Reykjarfjarðarhreppi

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá Nd., var afgreitt þar samhljóða og fjallar um sölu á eyðijörð í Reykjarfjarðarhreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu, sem Hálshús nefnist. Með frv. eru meðmæli hreppsnefndarinnar þar og einnig héraðsráðunautar. Landbn. Ed. hefur athugað frv. og lítur svo á, að það hafi fengið alla venjulega meðferð í Nd. og sér ekkert athugavert við að samþykkja frv. og leggur því til, að svo verði gert.