06.12.1965
Neðri deild: 25. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)

38. mál, nauðungaruppboð

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, um nauðungaruppboð er í nánum tengslum við frv. það, sem var afgreitt hér á undan, um skrásetningu réttinda í loftförum. Samgmn. d. hefur rætt frv. og orðið sammála um að mæla með því, að það verði samþ. óbreytt.