25.04.1966
Neðri deild: 77. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2553 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

165. mál, sala Gilsbakka í Arnarneshreppi

Frsm. (Gunnar Gíslason):

Herra forseti. Svo sem venja er í landbn., hefur hún sent þetta frv. til umsagnar jarðeignadeildar ríkisins og til landnámsstjóra. Þær umsagnir hafa borizt n., og er í þeim báðum mælt með þessari jarðarsölu, og landbn. er sammála um það að mæla með því, að frv. verði samþ.