05.04.1966
Neðri deild: 67. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2555 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)
179. mál, sala jarðarinnar Gufuskála í Gerðahreppi
Flm. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 436 að flytja hér frv. til I. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja jörðina Gufuskálar í Gerðahr., Gullbringus. Þetta er flutt að beiðni hreppsn. Gerðahr., eins og fram kemur í fskj. 1, og gerir hún þar grein fyrir flutningi frv., auk þess er fskj., þar sem yfirlýsing liggur fyrir frá núv. ábúanda jarðarinnar, þar sem að hann afsalar sér forkaupsrétti.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta, en legg til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. landbn.