03.05.1966
Neðri deild: 87. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2565 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)
168. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Keflavíkurkaupstaðar
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Mér þykir líklegt, að það sé rétt, að Keflavíkurkaupstaður þurfi að fá þetta land, sem ætlazt er til samkv. frv., að undir hann verði lagt, og sjálfsagt fær hann þetta, hvort sem það verður nú þessa dagana eða innan skamms. En það er meðferð þessa máls, sem ég vil finna mjög að. Ef hv. flm. málsins var það áhugamál og þeir töldu það nauðsynlegt að fá það afgr. á þessu þingi, hefðu þeir átt að flytja málið heldur fyrr en þeir gerðu. Og einnig er það hv. þn., sem hafði það til meðferðar. Ef hún taldi nauðsynlegt að fá þetta afgr. nú, átti hún að skila áliti fyrr en á allra síðustu dögum þingsins.
Þetta er í fyrri d., þetta frv., og mér sýnist vera ætlunin að knýja það í gegn með margföldum afbrigðum, og þó er þetta deilumál, það er upplýst, og það hefur, eftir því sem frsm. hv. n. sagði, komið bréf frá öðrum aðilanum, þar sem hann telur alls ekki útilokað, að það megi finna lausn á þessu máli með samkomulagi.
Ég tel, að þessi vinnubrögð séu ófær. Þrátt fyrir það, eins og ég sagði áður að ég telji það víst, að Keflavík þurfi að fá þetta land og eigi að fá það og hljóti að fá það innan skamms, þá vil ég vita þessi vinnubrögð hjá hv. Alþ.