15.12.1965
Sameinað þing: 22. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2699 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)
Aluminíumverksmiðja
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Eins og hæstv. iðnmrh. hefur skýrt frá, er nálega lokið samninga við ræðum milli fulltrúa ríkisstj. og svissneska alúminíumfélagsins um byggingu alúminíumbræðslu við Straumsvík í landi. Hafnarfjarðar. Hefur samkomulag þegar náðst um öll höfuðatriði.
Þegar lauk könnunarviðræðum, sem staðið höfðu í nokkur ár, og samningatilraunir hófust um mál þetta, gaf hæstv. ráðh. Alþ. ýtarlega skýrslu um málið. Nokkru síðar var sett á fót n. þm., sem síðan hefur fylgzt með gangi málsins í öllum atriðum. Í þeirri n. hafa stjórnarandstöðuflokkarnir átt fulltrúa og hafa þeir haft margt fram að færa, sem hefur haft áhrif á meðferð málsins. Á þennan hátt má segja, að Alþ. og þá ekki síður stjórnarandstaðan hafi fengið mjög gott tækifæri til þess að fylgjast með samningunum, og verður ekki með sanngirni talað um leynd í þeim efnum. Alþjóðlegir samningar, sem gerðir eru fyrir svo opnum tjöldum, munu vera næsta fáir.
Miðstjórn Alþfl. markaði stefnu í þessu máli á s.l. vori. Eins og þá var skýrt frá opinberlega, gerði hún ályktun á þá lund, að Alþfl. teldi ekki rétt að setja almenna löggjöf um innflutning erlends fjármagns eða stofnun erlendra fyrirtækja í landinu, heldur sé rétt að fjalla um hvert slíkt mál fyrir sig og meta hvert að verðleikum. Um fyrirhugaða alúminíumverksmiðju sagði í samþykkt miðstjórnar Alþfl., að flokkurinn teldi byggingu verksmiðjunnar æskilega, en setti það eðlilega skilyrði, að ekkert kæmi fram við samningagerðina, sem yrði frágangssök af hálfu Íslendinga. Samkv. þessari samþykkt hefur Alþfl. stutt þá samningagerð, sem fram hefur farið. Þegar endanlegt samningsuppkast verður tilbúið, mun flokkurinn taka það til meðferðar og endanlegrar afgreiðslu. Á þessu stigi er ekki ástæða til að ræða málið frekar efnislega, til þess munu gefast næg tækifæri, áður en langt um líður.