15.12.1965
Efri deild: 29. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í B-deild Alþingistíðinda. (213)
76. mál, vegalög
Frsm. 2. minni hl. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Við, sem stóðum að nál. 2. minni hl. samgmn., lögðum til. að frv. þetta yrði fellt. Við atkvgr. hefur komið í ljós, að það hefur meirihlutafylgi hér í hv. þd. Ég vil leyfa mér við þessa umr. að bera fram brtt. ásamt Ásgeiri Bjarnasyni, hv. 1. þm. Vesturl., og freista þess að fá nokkrar lagfæringar á þessu máli.
Í 15. gr. vegal. er svo fyrir mælt, að í upphafi hvers reglulegs Alþ. skuli ráðh. leggja fyrir þingið skýrslu um framkvæmd vegáætlunar: Í 1. brtt., sem við flytjum á þskj. 186, er kveðið nokkru nánar á um það, hvað í skýrslu ráðh. skuli tekið fram, en í brtt. segir svo:
„Skal þar m. a. greint frá viðhaldskostnaði á hinum einstöku hraðbrautum, landsbrautum og þjóðbrautarköflum samkv. nánari ákvörðun vegamálastjóra.“
Önnur brtt. okkar er við 88. gr. vegal., en þar er svo ákveðið, að eigendur jeppabifreiða, sem nota annað eldsneyti en benzín, eigi rétt á endurgreiðslu á þungaskatti, ef þeir sanna með vottorðum frá hlutaðeigandi skattstjóra eða umboðsmanni hans samkv. nánari ákvæðum í reglugerð, er fjmrh. setur, að bifreiðarnar hafi verið notaðar næstliðið ár að mestu eða öllu leyti við framleiðslu- og jarðyrkjustörf. Í brtt. okkar felst það, að eigendur jeppabifreiða eigi einnig rétt á endurgreiðslu á benzínskatti, ef bifreiðarnar nota benzín, en þó skuli endurgreiðsla til þeirra ekki nema meira en 3/4 hlutum þeirrar upphæðar, sem endurgreidd er eigendum jeppabifreiða, er nota annað eldsneyti. Með því að haga lagaákvæðum svo sem nú er, er að okkar dómi gerður of mikill munur milli þeirra manna, sem eiga annars vegar jeppabifreiðar með dísilvélum, og hins vegar þeirra, sem eiga jeppabifreiðar, sem knúðar eru benzínhreyflum. Hins vegar er á það að líta, að dísilbílar eru yfirleitt nokkru dýrari í innkaupi, og með tilliti til þess er þetta ákvæði, að endurgreiðslan af benzínskatti skuli einungis nema 3/4 hlutum þeirrar upphæðar, sem endurgreidd er vegna dísilbifreiða.
Síðasta brtt., þ. e. b-liður 2. brtt., er við 89. gr. vegal., en þar er kveðið svo á, eins og gert hefur verið að umræðuefni í sambandi við þetta frv., að við greiðslu kostnaðar samkv. l. þessum skal auk þeirra gjalda, sem um getur í 85. og 86. gr., veita árlega sérstakt framlag á fjárl. Í brtt. okkar er kveðið svo á, að þetta framlag skuli a. m, k. nema helmingi viðhaldskostnaðar á þjóðvegum, og er þá, ef þessi till. verður samþ., í senn tryggð allverulega aðstaða vegasjóðs og að hinu leytinu komið í veg fyrir slíkan ágreining eins og þann, sem upp hefur risið hér í sambandi við þetta frv.