27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
Strandferðaskip
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Það var aðeins út af einu atriði í ræðu hv. 1. þm. Austf., sem ég bað um orðið að nýju, en hann virtist ekki hafa heyrt lok þeirra fáu orða minna, sem ég viðhafði sem svör við fsp. í upphafi, en þar var það skýrt tekið fram, sem ég skal gjarnan endurtaka, að það er stefna ríkisstj., að framtíðarrekstri Skipaútgerðar ríkisins verði hagað á þann veg, að unnt verði að veita fullnægjandi þjónustu við landsbyggðina með mun minni tilkostnaði en unnt hefur verið hin síðari ár.
Í framhaldi af spurningu hans um, hvort það komi til greina að draga úr þeirri þjónustu, sem Skipaútgerðin veitir í dag, vil ég segja það, að ég hef engan mann heyrt gera till. um það, að úr þessari þjónustu yrði dregið. Það er öllum ljóst, hver nauðsyn er á þessari þjónustu, og óþarfi að eyða í það löngu máli hér að útskýra þá nauðsyn. En að því er stefnt, að þó að þessi skip yrðu seld, mundi það ekki skerða þá þjónustu, sem Skipaútgerðin veitir í dag, sem að sjálfsögðu þýðir það, að endurskipulagning og endurhæfing á starfsemi Skipaútgerðarinnar verður nauðsynlega að fara fram, og ég veit ekki til, eins og ég sagði áðan, að nokkrum hafi komið til hugar að draga úr þessari þjónustu.