13.10.1965
Sameinað þing: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2810 í B-deild Alþingistíðinda. (2162)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 13. okt. 1965. Þorv. Garðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sjálfstfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Péturs Sigurðssonar, 8. þm. Reykv., sem nú er erlendis, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra liggur hér fyrir. Hann hefur ekki áður átt sæti á þingi á þessu kjörtímabili og þarf því að fara fram rannsókn á kjörbréfinu. Vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert hlé á fundinum. — [Fundarhlé.]