13.10.1965
Sameinað þing: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2810 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund til að rannsaka kjörbréf Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra, sem er nú 1.varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, en þess hefur verið óskað, að hann tæki nú sæti á Alþ. í fjarveru Péturs Sigurðssonar, hv. 8. þm. Reykv. Kjörbréfanefnd sér ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði samþ. og kosning Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra verði tekin gild.