09.12.1965
Sameinað þing: 18. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2812 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 8. des. 1965.

Alfreð Gíslason, 9. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að óska þess, að vegna veikinda l. varamanns taki 2. varamaður Alþb. í Reykjavík, Magnús Kjartansson ritstjóri, sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Magnúsar Kjartanssonar ritstjóra liggur hér fyrir, og leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd um að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. —