13.12.1965
Sameinað þing: 20. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2812 í B-deild Alþingistíðinda. (2174)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SÁ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 10. des. 1965. Ingólfur Jónsson, 1. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Hv. þm. hefur áður setið á Alþ. og kjörbréf hans hefur því verið rannsakað áður og samþykkt. Ég býð hann velkominn til starfa hér á Alþingi.