07.02.1966
Sameinað þing: 25. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 26. jan. 1966. Sigurður Bjarnason, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að í forföllum varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Einar Guðfinnsson útgerðarmaður í Bolungarvík, sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Benedikt Gröndal, forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Kristján Jónsson, hefur tilkynnt með símskeyti, að hann geti ekki tekið sæti Sigurðar Bjarnasonar á Alþ. í forföllum hans. Símskeytið er dags. 24. þ. m. Kjörbréf Einars Guðfinnssonar hefur áður verið rannsakað, og hann er mættur til þingstarfa og býð ég hann velkominn til þingstarfa.

Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 5. febr. 1966.

Þórarinn Þórarinsson, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Kristján Thorlacius deildarstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Benedikt Gröndal, forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kristján Thorlacius hefur áður setið á Alþ. sem varamaður og rannsókn farið fram á kjörbréfi hans. Hann er mættur til þingstarfa og býð ég hann velkominn.