16.03.1966
Sameinað þing: 31. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2814 í B-deild Alþingistíðinda. (2177)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 15. marz 1966.

Emil Jónsson, 2. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., aðóska þess, að l. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Ragnar Guðleifsson kennari, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ragnar Guðleifsson kennari hefur áður tekið sæti á Alþ. sem varamaður fyrir Alþfl. í Reykjaneskjördæmi og rannsókn farið fram á kjörbréfi hans. Býð ég hann velkominn til þingstarfa að þessu sinni.