14.04.1966
Neðri deild: 69. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2816 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hafa borizt eftirfarandi bréf: „Reykjavík, 13. apríl 1966. Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að fara fram á, að 2. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi. Sigfús J. Johnsen kennari. Vestmannaeyjum, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Guðlaugur Gíslason,

3. þm. Sunnl.“

Sigfús J. Johnsen kennari hefur áður átt sæti á Alþ. og hefur undirritað drengskaparheit um að halda stjórnarskrána. Kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Ég býð hann því velkominn til setu í hv. þd.

Þá hefur forseta borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 14. apríl 1966.

Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Skúli Guðmundsson,

1. þm. Norðurl. v.“

Jón Kjartansson forstjóri hefur áður átt sæti á Alþ. og kjörbréf hans verið rannsakað. Ég leyfi mér að bjóða hann velkominn til setu í hv. þd.