18.04.1966
Sameinað þing: 37. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2817 í B-deild Alþingistíðinda. (2185)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 18. apríl 1966.

Bjartmar Guðmundsson, 8. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að fara fram á, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Ó. Ólafsson, forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Samkv. þessu bréfi tekur Ragnar Jónsson skrifstofustjóri sæti á þinginu í stað 8. landsk. þm. Kjörbréf hans hefur áður verið rannsakað, og þarf því ekki að fara fram rannsókn á því á ný. Býð ég Ragnar Jónsson velkominn til þingstarfa.