22.04.1966
Sameinað þing: 39. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2817 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 22. apríl 1966.

Gísli Guðmundsson, 3. þm. Norðurl. e., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna starfa utan þings leyfi ég mér hér með að fara þess á leit, að mér verði veitt fjarvistarleyfi næstu vikur frá og með 22. þ. m. og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ., að fara fram á, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Hjörtur E. Þórarinsson bóndi á Tjörn í Svarfaðardal. taki sæti mitt á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á Tjörn í Svarfaðardal. hefur áður átt sæti á Alþ. sem varamaður fyrir Framsfl. í Norðurl. e. Þarf því ekki að þessu sinni að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans og býð ég hann velkominn til þingstarfa.