29.04.1966
Sameinað þing: 42. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2819 í B-deild Alþingistíðinda. (2190)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 28. apríl 1966.

Einar Ágústsson, 11. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Kristján Thorlacius deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason, forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kristján Thorlacius deildarstjóri hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og rannsókn farið fram á kjörbréfi hans. Þarf því ekki að rannsaka það að þessu sinni, og býð ég hann velkominn til þingstarfa. Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 28. apríl 1966.

Friðjón Skarphéðinsson, 9. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til þess að sitja ráðgjafarþing Evrópuráðsins í Strasbourg og verð væntanlega fjarverandi um tveggja vikna skeið, mælist ég til þess, að 2. varamaður landsk. þm. Alþfl., Pétur Pétursson forstjóri, Reykjavík, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni, og vísa í því sambandi til 138. gr. kosningalaga. Það skal tekið fram, að 1. varamaður landsk. þm. flokksins, Unnar Stefánssón, situr nú á Alþingi í fjarveru Sigurðar Ingimundarsonar.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Pétur Pétursson forstjóri hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið rannsakað. Þarf því ekki að rannsaka það að þessu sinni, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.