14.10.1965
Efri deild: 3. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

5. mál, brunatryggingar utan Reykjavíkur

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Á síðari hluta þings s.l. vetur var samþ. frv., sem efnislega er samhljóða því frv., sem hér er til umr., en það var um brunatryggingar í Reykjavík. Við umr. um fyrrgreint frv. var m. a. talið nauðsynlegt að undirbúa samþykkt frv. um sama efni varðandi brunatryggingar utan Reykjavíkur, og þess vegna er þetta frv. nú flutt að ósk Sambands ísl. sveitarfélaga eða fulltrúaráðs þess.

Efni þessa frv. sem og hins fyrra er í sem fæstum orðum það að tryggja rétt sveitarfélaga til að leysa hús til sín, ef brunatjón verður meira en helmingur brunabótaverðs og ef nauðsynlegt er talið vegna eldhættu eða af skipulagsástæðum, að eignin verði fjarlægð. Þessi heimild til yfirtöku eignarinnar skal fara eftir reglum, sem greinilega eru fram settar í 1. gr. frv. og óþarft er að fjölyrða um hér.

Það er till. mín, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og félmn.