17.12.1965
Neðri deild: 37. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2829 í B-deild Alþingistíðinda. (2233)

Þingsetning

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm. og góða fundarstjórn. Ég vil jafnframt óska honum og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og góðs komandi árs. Ég bið hv. þdm. að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum.