17.12.1965
Sameinað þing: 24. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)

Þingsetning

Eysteinn Jónsson:

Ég vil fyrir hönd okkar alþm. þakka hæstv. forseta árnaðaróskir hans í okkar garð. Ég óska honum gleðilegra jóla og hans fjölskyldu og góðrar heimferðar í jólahléinu, og ég óska honum innilega gleðilegs nýs árs og þakka honum fyrir hönd okkar allra fyrir gamla árið og fyrir ágæta samvinnu á fundum sameinaðs Alþingis og við þinghaldið yfir höfuð. Ég bið menn að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. —