07.02.1966
Sameinað þing: 25. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (2241)

Þingsetning

Forseti (BF):

Samkv. forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú kunngert, hefjast fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir hans í minn garð og hv. alþm., og ég óska honum og þingheimi öllum velfarnaðar á nýbyrjuðu ári. Verður nú gengið til fundarstarfa.