05.04.1966
Neðri deild: 67. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)

Þinghlé

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð, um leið og ég þakka honum samstarfið við okkur. Þá flyt ég honum óskir okkar um gleðilega páskahátíð honum til handa og hans fjölskyldu. Ég bið hv. þm. að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. —