04.05.1966
Neðri deild: 89. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2832 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. góða og ánægjulega samvinnu og umburðarlyndi við mig sem forseta á liðnum vetri. Sérstaklega þakka ég hv. þdm. samvinnulipurð þeirra og þolgæði síðustu vikur, sem hafa verið óvenjulegir annatímar, er lagt hafa mikla vinnu á hv. þdm. Jafnframt leyfi ég mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Að lokum vil ég láta þá ósk í ljós, að vér megum allir heilir hittast á nýju þingi.