05.05.1966
Sameinað þing: 48. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

Þinglausnir

Forseti (BF):

Ég þakka hv. 1. þm. Austf., Eysteini Jónssyni, fyrir hlý orð og vinsamleg í minn garð og minnar fjölskyldu. Einnig þakka ég hv. alþm. undirtektir þeirra, og endurtek óskir mínar um gæfu og gengi þeim til handa og ég vona, að við hittumst hér öll heil að hausti.