10.12.1965
Sameinað þing: 19. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (2668)
10. mál, ellefu hundruð ára afmæli Íslandsbyggðar 1974
Frsm. (Sigurður Ingimundarson):
Herra forseti. Allshn. hefur haft þetta mál til athugunar og er sammála um að mæla með samþykkt þess. Í till. felst, að kjósa skuli 7 manna n. til athugunar á því, hvernig minnast skuli ellefu hundruð ára byggðar á Íslandi á árinu 1974. Fljótt á litið kann að virðast langt til stefnu, en eins og hæstv. forsrh. gat um í framsöguræðu sinni, er verðugt að minnast svo merks afmælis á viðeigandi hátt, og kemur þá til greina að setja sér eitthvert markmið um framkvæmdir í menningar- eða þjóðernismálum, er síðar yrðu sögulegar og sýnilegar menjar sjálfs afmælisdagsins. Vafalaust er um margt að velja hvað þetta snertir og vel til fallið að nota slíkt tilefni til öflunar æskilegra og helzt sígildra þjóðarverðmæta, sem ef til vill yrðu seint eða aldrei til með öðrum hætti. Margt af því, sem til greina kann að koma, getur þurft langan undirbúning og ef til vill töluverða fjárveitingu, og ber því að fagna þeirri forsjálni, sem í till. felst, og leggur n. einróma til, að till. verði samþ.