30.03.1966
Sameinað þing: 34. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (2692)
66. mál, garðyrkjuskóli á Akureyri
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Till. þessi er áskorun á ríkisstj. að láta fara fram athugun á því, hvort eigi sé grundvöllur fyrir stofnun garðyrkjuskóla á Akureyri eða í grennd, og skal þeirri athugun lokið fyrir næsta Alþ. eins og sjá má, er fjvn. sammála um þessa till. og má þess vegna ætla, að hún verði samþykkt. Þá er vitanlega sjálfsagt að verða við því að láta þessa athugun fara fram. Um það, hvort grundvöllur er fyrir því að stofna hér annan garðyrkjuskóla og reka tvo garðyrkjuskóla, skal ég ekkert fullyrða nú. Ég vil hins vegar benda á það, að garðyrkjuskóli ríkisins hefur starfað í Hveragerði nú um 30 ára skeið eða nærri því og þessi skóli hefur búið við fjárskort og í lélegum húsakynnum. Nú er uppbyggingu þessa skóla vel á veg komið, þannig að þegar húsakosturinn hefur verið aukinn og kominn í það horf, sem honum er ætlað að vera, er hægt að taka fleiri nemendur þangað, og það hefur einnig verið fyrirhugað að koma upp við garðyrkjuskólann á Reykjum fullkominni tilrauna- og kennslustöð í garðrækt. En fram að þessu hefur garðyrkjustöðin í Hveragerði verið að talsverðu leyti miðuð við það, að skólinn gæti selt sér til hagnaðar framleiðsluna.
Nú má vel vera, þar sem garðyrkja er orðin svo mikill og stór þáttur í framleiðslu okkar og á eftir að verða enn stærri þáttur með aukinni þekkingu á garðrækt, að það sé eðlilegt, að það verði 2 garðyrkjuskólar. Ég vil ekki dóm á það leggja. En ég mundi segja, að ef ekki væri fjármagn til að búa vel að tveimur skólum, þá væri betra að hafa einn skóla, sem fengi öll tæki í hendur og aðstöðu til fullkominnar kennslu, en að hafa tvo skóla, sem ekki væri unnt að láta fá það, sem nauðsynlegt væri, svo að góður árangur næðist. Það verður þess vegna að ætla, að ef hv. Alþingi kemur til með að samþykkja, að hér verði tveir garðyrkjuskólar, annar í Hveragerði og hinn fyrir norðan, verði séð fyrir fjármagni, til þess að báðir þessir skólar verði reknir þannig, að að gagni geti komið. Og að sjálfsögðu verður þetta allt saman vegið og metið, eftir að sú rannsókn hefur fram farið, sem hér er gert ráð fyrir að verði framkvæmd.
Ég vildi aðeins taka þetta fram og vekja athygli á því, sem hefur gerzt og er að gerast í samþandi við garðyrkjuskóla ríkisins, og að það fylgir því að sjálfsögðu sú skylda að útvega nægilegt fé til rekstrar garðyrkjuskóla fyrir norðan, ef til hans verður stofnað, og þá án þess að skerða þær fjárveitingar eða draga úr því, sem sjálfsagt er að veita núverandi skóla. En ég vil ekki gera lítið úr garðyrkjunni. Það er ung atvinnugrein í landinu, sem að sjálfsögðu á fyrir sér að vaxa og verða enn þýðingarmeiri þáttur en hingað til hefur verið.