09.02.1966
Sameinað þing: 26. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (2700)
60. mál, lækkun kosningaaldurs
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að taka undir það, sem fram kemur í þessari þáltill. Ég man eftir, að fyrir nokkrum árum ræddum við þetta á fundi í Norðurlandaráði og fór þar fram einmitt atkvæðagreiðsla um þessa hluti, og meiri hlutinn af íslenzku fulltrúunum stóð þá með því að lækka kosningaaldur. Ég vil leyfa mér að vona, að við frekari umræður, þegar þetta kemur aftur úr n., sýni það sig alveg, hver afstaða þingflokkanna er í þessum efnum, en ég álit það mjög tímabært, að þetta mál sé nú tekið upp, einmitt á því þingi, sem er næstsíðast, áður en til kosninga kemur, þannig að hægt væri að athuga það fyrir næsta Alþingi.