27.04.1966
Sameinað þing: 41. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (2709)

192. mál, listamannalaun

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ríkisstj. er ljóst og hefur verið ljóst, að mjög æskilegt væri, að nýrri skipan yrði komið á úthlutun þess fjár, sem Alþ. veitir árlega til listamannalauna. Ég vil því mæla með því, að till. verði samþ., án þess að henni sé vísað til n., og heiti því jafnframt, að ríkisstj. mun fyrir næsta þing leggja fram till. um nýskipan í þessum efnum, ef till. nær fram að ganga.