28.02.1966
Efri deild: 43. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (440)
108. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það frv., sem hér er um að ræða, felur það nýmæli í sér, að kjósandi getur gert grein fyrir sér með nafnskírteini og sannað, hver hann er, en slíkt kemur auðvitað því aðeins til greina, að kjörstjórn telji leika vafa á í því efni. Með tilliti til þeirra reglna, sem lögfestar hafa verið um nafnskírteini og nú gilda, er ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir slíkri notkun þessara skilríkja. Allshn. mælir því einróma með samþykkt frv.