01.04.1966
Efri deild: 59. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (628)
11. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Þegar þetta frv. var hér til umr. síðast, 3. umr., óskaði hæstv. sjútvmrh. eftir því, að það væri borið undir fiskifræðinga, hvort álit þeirra væri, að svartfuglinn gæti haft áhrif á fiskstofna hér við land.
Út af þessu var óskað eftir því, að umr. yrði frestað um þetta mál og menntmn. athugaði það í tilefni af þessari ósk hæstv. sjútvmrh. N. skaut á fundi og fól formanni sínum, hv. 2. þm. Reykv., að ræða við Jón Jónsson fiskifræðing um þetta atriði og einnig taldi hún rétt, að þetta væri borið undir helzta sérfræðing að því er fugla snertir, dr. Finn Guðmundsson. Álit Jóns Jónssonar fiskifræðings var það, að svartfuglinn mundi ekki hafa áhrif á fiskstofna hér við land, þó að hann að vísu, eins og viðurkennt er, éti nokkuð af fiskaseiðum. Í öðru lagi taldi Finnur Guðmundsson, að það mundi ekki vera um það að ræða, að svartfuglinn eða veiðar hans mundu nokkru geta skipt um það. Sem sagt, álit beggja þessara sérfræðinga var það, að það mundi engu máli skipta, hvort mikið eða lítið væri veitt af svartfuglinum.
Í öðru lagi taldi n. rétt að athuga í sambandi við þá brtt., sem hér liggur fyrir á þskj. 341, hvort samþykkt hennar kynni að hafa einhver áhrif þannig, að það skapaði fordæmi um það að greiða bætur, ef veiðarfæri eru bönnuð með lögum. Sú athugun virðist hafa leitt í ljós, að samþykkt þessarar brtt. muni ekki skapa nein ný fordæmi í þessu efni, og þar af leiðandi tel ég persónulega, að eðlilegt sé, að till. sé samþ., þar sem hún er sanngjörn og ekki er heldur að mínu viti um neinar verulegar upphæðir að ræða í sambandi við bætur fyrir það, að niður sé lögð flekaveiði við Grímsey og Drangey. Hins vegar hafa nm. aðrir óbundnar hendur um það, hvort þeir styðja þessa till. eða ekki, en sem sagt, samþykkt hennar skapar ekki nein ný fordæmi í þessu efni.