18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1006)

183. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hæstv. forsrh., að það mun hafa verið samið um það milli ríkisstj. og BSRB og þingflokkanna að láta frv. ganga í gegnum þingið, án þess að gerðar yrðu breyt. á því eða bornar fram brtt. En það útilokar að sjálfsögðu ekki það, að í sambandi við meðferð þessa frv. megi ræða um einstök atriði, sem almennt snerta þessi mál, og heldur ekki, að gerðar séu fyrirspurnir til ríkisstj. um einstök framkvæmdaatriði önnur en þau, sem þetta frv, fjallar um, og þess vegna getur hæstv. forsrh. ekki skotið sér á bak við þetta samkomulag, þegar hann neitar að svara hér fyrirspurnum.