17.04.1967
Efri deild: 71. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1491 í B-deild Alþingistíðinda. (1299)
159. mál, skólakostnaður
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Fyrirspurn hv. síðasta ræðumanns um iðnskólana, sem nú starfa, svara ég þannig, að ég tel þá tvímælalaust vera sameiginlega eign ríkis og sveitarfélaga.